Hæ öll sem ég þekki, frænkur, frændur, ömmur, afar og vinir.
Ég hlakka til að koma til Íslands um jólin því ég sakna ykkar mikið. En það er samt gaman að eiga heima í Danmörku. Ég er byrjuð að blogga til að segja ykkur hvað er að gerast. Ég ætla alltaf að blogga þegar eithvað rosalega skemmtilegt gerist hjá mér. Mér finnst gaman að vera úti í góða veðrinu. Ég er búin að vera úti með vinum mínum að leika og vera inn og gera margt annað skemmtilegt. Í dag fór ég í sund með fjölskyldunni minni. Svo er ég líka búin að fara í tívolí, alveg geggjað. Ég er búin að missa fimm tennur. Ég verð 7 ára bráðum. Síðan ég flutti hingað er allt búið að vera geggjað. Það er líka geggjað í dýragarðinum og þar eru fílar og jakuxar. Ég er komin í förste klasse í skólanum mínum en hann heitir Hammergård skole. Í skólanum eru fjórir Íslendingar og þar er rosalega skemmtilegt. Bestu vinir mínir í skólanum eru Sæþór, Sofie, Jonas, Emilie, Semra og Shaba.
Bestu kveðjur
Sigga.
søndag den 19. oktober 2008
Abonner på:
Kommentarer til indlægget (Atom)
2 kommentarer:
Hæ Sigga til hamingju með síðuna skkrifaðir þú sjálf?er ekki gaman að eiga svona? síðu mér finst það æðislegagamann jæja bless bles og góða nótt Sigga og skemtu þér vel með síðuna bless sjáumst.
Ég næstum því skrifaði sjálf. Það er gott að heyra í þér góða nótt.
Sigga
Send en kommentar